Ná Ðer Vónt Dú Ení Mittenteiks
Listir vina og kunningja
10.09.2007 21:22:45 / kristink

bæó

Farin, alveg!!!! www.123.is/akureyri

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 23:24:18 / kristink

Eirðaleysi

Bara að vinna þennan veturinn. Er það nóg?


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 09:45:07 / kristink

óskalisti virkar

Það sem mig langar í? Eru meiri líkur á að ég fái það sem ég vil ef ég skrifa það niður? Hver veit! Ég get þá allavega notað listann sem tékk lista þegar ég fer og kaupi mér eitthvað. Mig langar í. Þetta virkar, set x fyrir aftan það sem komið er.

  1. gallabuxur x
  2. hægindastól
  3. gólflampa  með lesljósi
  4. lofljós á ganginn, stofuna, forstofuna, svefnherbergin. x
  5. hjól x
  6. myndavél x
  7. úlpuvesti
  8. sjónvarp x
  9. dvd spilara x
  10. rúmteppi
  11. nærföt x
  12. þurkara
  13. klippingu
  14. föt og föt x
  15. hárskraut
  16. fordómaleysi gagnvart femenistum
  17. mikinn og frábæran félagsskap x (má alltaf bæta á)
  18. Góðar bækur x
  19. mann
  20. myndir á veggina
  21. aukið ímyndunarafl x
  22. vera meira spontant x
  23. vera hamingjusamari
  24. veski x
  25. fallega hluti x
  26. eitthvað óvænt x
  27. innra jafnvægi
  28. vera hjálpsamari
  29. verða rithöfundur
  30. verða fallegri á sál og líkama
  31. krullujárn
  32. armband x
  33. kraft
  34. meiri kjark x
  35. gsm síma x

Þetta er bara frábært

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 23:22:39 / kristink

plan

well smell.

planið!!

fara í útilegu næstu helgi

fara í sumarfrí þarnæstuhelgi

fara suður þá: heimsækja mömmu og pabba, sjá nýja húsið hennar Tinnu, heimsækja ömmu, hafa það gott, fara á melbæjarskeldu 6. júlí. þá verð í trítug og allir velkomnir í partí í Melbæ. Hitta Helgu og Völu... thelmu... guggu..........

fara í hellaskoðun

ganga Grábrók

fara við Vatnajökul

tjalda og tjalda (við elskum það) í góðum veðrum

Þingvellir, sérstaklega drekkingarhylur (sagan heillar Benedikt Jökul, hann er svo fegin að ég sé ekki uppi á þeim tíma sem hylurinn var notaður til drekkinga)

svo var verið að bjóða okkur í Þórsmörk og við þangað

Við erum snillingar!!!

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 20:24:50 / kristink

þakklæti

takk takk takk takk, miljón þekkir mínir kæru vinir, mínar kæru systur, mínir kæru bræður, mín kæra amma og mínir kæru foreldrar


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 21:05:46 / kristink

Óskalistinn

Það sem mig langar í? Eru meiri líkur á að ég fái það sem ég vil ef ég skrifa það niður? Hver veit! Ég get þá allavega notað listann sem tékk lista þegar ég fer og kaupi mér eitthvað. Mig langar í:

  1. gallabuxur
  2. hægindastól
  3. gólflampa  með lesljósi
  4. lofljós á ganginn, stofuna, forstofuna, svefnherbergin.
  5. hjól
  6. myndavél
  7. úlpuvesti
  8. sjónvarp
  9. dvd spilara
  10. rúmteppi
  11. nærföt
  12. þurkara
  13. klippingu
  14. föt og föt
  15. hárskraut
  16. fordómaleysi gagnvart femenistum
  17. mikinn og frábæran félagsskap
  18. Góðar bækur
  19. mann
  20. myndir á veggina
  21. aukið ímyndunarafl
  22. vera meira spontant
  23. vera hamingjusamari
  24. veski
  25. fallega hluti
  26. eitthvað óvænt
  27. innra jafnvægi
  28. vera hjálpsamari
  29. verða rithöfundur
  30. verða fallegri á sál og líkama
  31. krullujárn
  32. armband
  33. kraft
  34. meiri kjark

Ég útskrifast 9. júní og á 30 ára afmæli 6. júlí, hehe

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 13:38:30 / kristink

Nýjustu vangaveltur

Mín yndislega vinkona er þrítug á laugardaginn, á ég að fara? Það er frábær hugmynd!

Ég útskrifast 9. júní á ég að halda veistu í Keflavík? Það er líka frábær hugmynd!

Hvað gerir maður eftir nám?

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 18:34:49 / kristink

...og

búin að skila

» 6 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 08:21:37 / kristink

Miklir dagar

Eftir tvo daga skila ég lokaritgerðinni, vvvvííííí . Þá er ég búin með stjórnunarnámið og get farið að lifa eðlilegu lífi. Horft á sjónvarp á kvöldin, farið í sund á laugardags morgnum, sofið lengur á sunnudögum. Farið í heimsóknir, fara suður sem ég ætla að gera um helgina. Hef ekki farið síðan amma dó í janúar.

 Kostningar... stórir dagar framundan. Ég er búin að ákveða mig og það gekk mjög vel. spurði mig fyrst hvað ég vildi og þá fékk ég VG svo notaði ég úti lokunaraðferðina, hvað vil ég ekki og aftur endaði það svo að VG hentar mér.

 Evrovision, er alveg sama

kv 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 09:19:29 / kristink

tilvitnun í kjósanda:

Tilvitnun í 37 ára karlmann: 

"jafnréttisbaráttan... bufff, það sem konur eiga bara að gera er að þær eiga að hætta að leika fórnarlömb og fara reyna meira á sig. Vandamálið er bara að þær semja sig of lángt"

Þessi kjósandi kýs sjálfstæðisflokkinn.

 

Dekk til sölu..... kosta tíuþúsund tölur og hver þeirra kostar eina krónu

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 17:40:41 / kristink

Dekk til sölu

Til sölu 185/70 14 undan toyotu. Mjög fín, svo fín að ég græt það að þau passi ekki undir þennan sem ég er að núna. Verðhugmynd 10.000.- Þau eru fyrir norðan en ég verð á ferðinni næstu helgi sunður og get tekið þau með. S: 8655922


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 08:45:34 / kristink

morgunþankar

Í hvaða föt á ég að fara!!!! Mig langar að hitta þann sem glímir ekki við þennan vanda einvherntíman á ævinni. Þegar fer að vora byrjar vandinn hjá mér, réttara sagt þegar það er gott veður. Ég á alveg föt sem henta í 15-20 stiga hita en þá kemur spéhræðslan inn. Ætli ég sé með bólu á bakinu... eru fætur mínir órakaðir... en undir höndunum... Konur og kröfur. Hver gerir þessar kröfur, er það ég sjálf, er það klámvæðingin, er það samfélagið, er það hinn óáþreifanlegi mælikvarði sem segir hvað er fallegt og eðlilegt? Af hverju líður konum betur þegar þær eru rakaðar, undirhöndum og á fótum. Til viðbótar, og á píkunni. hverja er verið að gleðja?

Ætla nú að skella mér í sund. Í pilsi, hlýrabol, órökuð undir höndum, rökuð á fótum og lít út eins og kynþroska kona að neðan.  

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 17:17:07 / kristink

Hvað er talið?

Álitamál eru ætíð erfið og sjaldan er úr þeim skorið. Þegar átt er við álitamál er um málefni sem ekki er um eina vísindalega niðurstöðu að ræða, reiknisdæmi telst vísindalegt. Þá ætla ég að tala um upplifanir barna á vissum aðstæðum og þess tíma sem á eftir kemur. Ég hef heyrt að börn gleymi svo fljótt atvikum sem eru neikvæð, t.d. þegar þau gleymast, ekki sé staðið við sögð orð að þurfi að taka tillit til þess þegar hagsmunir barns eru skipulagðir. hummm

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 20:45:25 / kristink

humm

Jebb og jamm og dúddí dú, lallalalæ... dúddíridú... dadaradæ... og hvað svo? búin að viðrkenna að er þetta kvörtunardálkur... finn ekki þörf fyrir að skrifa nema að kvarta yfir einhverju!! 

 ég berst við drauga. Samfélagsdrauga. Hvað er það? ... ef til vill allt það sem gerir mér þykir rangt gagnvart mér. Sumir draugar eru erfiðari en aðrir. hver hefur sinn djöful að draga... vildi bara að minn væri ekki óviðráðanlegir fylgifiskar stæðstu ákvörðunar lífs míns.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3